Laila markaðsstofa tekur að sér verkefni af ýmsu tagi svo sem markaðssetningu, viðburðarstjórnun, vefmál, almannatengsl, þýðingar, textagerð og prófarkalestur.

Ég hef yfir 15 ára reynslu í markaðssetningu og starfaði áður sem markaðsstjóri hjá TM Software, Nýherja, Krabbameinsfélaginu og Dohop. Á þeim vinnustöðum vann ég ýmis verkefni sem m.a. fólu í sér verkefnastýringu, áætlunargerð, samskipti við fjölmiðla og birgja, hugmyndavinna, grafísk vinna og verkefni af öllum stærðum og gerðum, þýðingar á efni á ensku, þýsku og íslensku, prófarkalestur o.fl.

Sem markaðsstjóri vantaði mig oft hjálparhönd við ákveðin verkefni til að komast yfir þau en gat ekki ráðið inn viðbótarmanneskju til þess. Því ákvað ég að stofna mitt eigið fyrirtæki sem utanáliggjandi markaðsstofa. Þjónusta fyrirtæki sem einmitt vantar aðstoð við markaðsmál og verkefni sem tengjast þeim til lengri eða styttri tíma. Ég er með grafíska hönnuði og vefgerðarfyrirtæki mér til aðstoðar ef það vantar aðstoð í þeim málum að auki.

Verkefni, dæmi:

Nú er bara spurning hvernig ég get aðstoðað þig.

Það getur verið einstaklega hentugt fyrir fyrirtæki að ráða utanaðkomandi markaðsráðgjafa til að sjá um markaðsmálin því oft á tíðum sér sá hinn sami tækifæri í vörunni eða þjónustunni sem starfsmenn fyrirtækisins hafa ekki séð.

„Glöggt er gests augað“.

Ég get séð um markaðsmálin hvort sem þau eru stór eða smá, herferðir eða hreinlega einstaka markaðsmál sem geta komið upp. Eru t.a.m. samfélagsmiðlarnir þínir í góðu standi og sést vefsíðan þín vörur og þjónustur þegar þú leitar að þeim á internetinu? Gætu verið tækifæri á markaðnum sem þú hefur ekki áttað þig á eða gætirðu sparað þér pening með því að birta auglýsingar á réttum stöðum. Markaðssetningin getur verið einstaklega mismunandi eftir því hvern þú vilt nálgast og hvenær og því er nauðsynlegt að setjast niður og skoða hvernig við getum unnið saman.

Hlakka til að heyra í þér